Þriðjudagur, 21. júní 2022

Velferðarþjónusta Árnesþings í Laugarási
óskar eftir starfsmanni við stuðningsþjónustu / félagslega heimaþjónustu.
Um er að ræða allt að 80 % stöðu, viðkomandi þarf að geta byrjað sem fyrst.
Greitt er samkvæmt kjarasamningi Félags opinbera starfsmanna á suðurlandi.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Almenn þrif
- Aðstoð við persónulega umhirðu
- Veita félagslegan stuðning og hvatningu
- Vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan þjónustuþega
- Hreint sakavottorð
Helstu hæfniskröfur:
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Hæfni til að starfa sjálfstætt
- Skilyrði að umsækjandi hafi reynslu af almennum heimilisstörfum
- Að vera 20 ára eða eldri og hafa bíl til umráða.
- Mælst er til að viðkomandi geti talað íslensku
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Símonardóttir í síma 480-1180
eða sendið fyrirspurn í tölvupósti á sigrun@laugaras.is