
Leikskólinn Leikholt óskar eftir að ráða leikskólakennara í 82,5% stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 9. janúar eða eftir samkomulagi. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í skólanum.
Menntun og hæfniskröfur:
- Leikskólakennararéttindi áskilin.
- Sýni jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilja.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi og hæfni í starfi með börnum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Meginverkefni:
- Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra.
Leikskólinn Leikholt er Grænfána leikskóli þar vinna 10 starfsmenn og þar ríkir góður vinnuandi, við leggjum áherslu á ART þjálfun, mikla málörvun og læsi og kennslu í gegnum leikinn. Einkunnarorð leikskólans eru: Gleði, vinsemd og virðing.
Frekari upplýsingar veitir Elín Anna Lárusdóttir leikskólastjóri sími 486-5586/895-2995 og áhugasamir geta sent umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið leikholt@leikholt.is.
Fáist ekki leikskólakennari til starfsins er heimilt að ráða annan í stöðuna. Starfið hentar jafnt körlum sem konum og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 19. desember 2016.