Dagur | Opnunartími |
---|---|
Miðvikudagar | 14:00 - 17:00 |
Laugardagar | 12:00 - 15:00 |
Eftir breytingar á lögum um sorp, sem tóku gildi 1. janúar 2023 er tekið móttökugjald fyrir allt sorp sem komið er með á gámasvæði sveitarfélagsins (að undanskyldu flokkuðu plasti, pappír, pappa og brotajárn). Gjaldtaka á móttökustað miðast við m3 þess úrgangsmagns sem afsett er.
Um gjaldskyldu og flokka úrgangs gildir gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgangs í Skeiða og Gnúpverjahrepp.
Móttökugjald á 1/4 m3 af óflokkuðum úrgangi er 4.600 kr.
Móttökugjald á 1/4 m3 af grófum úrgangi er 4.600 kr.
Móttökugjald á 1/4 m3 af lituðu timbri er 3.500 kr
Móttökugjald á 1/4 m3 af ólituðu timbri er 2.500 kr
Móttökugjald á 1/4 m3 af gleri er 4.000 kr.
Hægt er að greiða móttökugjaldið með greiðslukorti á staðnum eða fá reikning sendann eftirá.
Við heimili í sveitarfélaginu er, frá júní 2022, tunnur fyrir almennt sorp, pappa/pappír og plast og ætlast er til að lífrænn úrgangur fari í "fjórðu tunnuna" en hér í sveitarfélaginu er misjafnt hvað heimili gera við lífrænan úrgang. Því miður hefur eki fundist lausn fyrir þá sem áður voru með svokallaða "hörpu turna" en vonandi leysist það fljótt.
Flokkunarleiðbeiningar fyrir plast og pappatunnurnar má finna hér fyrir neðan en einnig leiðbeiningar um flokkun í lífrænu tunnuna sem finna má í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins
Hér fyrir neðan má finna tengla inn á helstu upplýsingar og leiðbeiningar tengdum sorpmálum í sveitarfélaginu:
Um hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu sér Seyrufélagið - samstarfsverkefni sex sveitarfélaga á suðurlandi.
Á heimasíðu Seyruverkefnisins - Seyra.is má finna allar upplýsingar um hreinsunaráætlunina, hvenær þín rotþró var hreinsuð síðast, hvert skal hringja í neyðartilvikum, hvað gæti mögulega verið að hrjá rotþró sem lyktar illa og fleira í þeim dúr. Símanúmer þjónustufulltrúa Seyruverkefnisins er 832-5105 en einnig er hægt að senda póst á netfangið seyra@seyra.is