Framkvæmdanefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Velja má nefnd úr boxinu hér hægra megin / fyrir neðan til að sjá allar fundargerðir viðkomandi nefndar.

2. fundur 12. mars 2024 kl. 15:30 - 17:30 Árnes
Nefndarmenn
  • Gunnar Örn Marteinsson
  • Lilja Loftssdóttir
  • Haraldur Þór Jónsson
Starfsmenn
  • Vilborg Ástráðsdóttir
Fundargerð ritaði: Haraldur Þór Jónsson


Árnesi, 12.3.2024
Fundanúmer í WorkPoint : F202403-0010

 

1. Íbúafundur um skipulag í Árnesi

 

Farið yfir skipulag íbúafundarins sem verður haldinn kl. 10:30 næsta laugardag, 16. mars í Árnesi.

Dagskrá fundarins verður:

Haraldur fer yfir vinnu síðustu mánaða og tímalínuna.

Vilborg fer yfir skólabyggingarnar, hvað sé búið að gera og hvað sé framundan.

Páll og Hannes taka svo við og kynna sína aðkomu að verkefninu, þrívíddarlíkanið o.fl.

Umræður á borðum og stutt SVOT greining.

 

Koma þarf stærðum af fyrirhuguðu íþróttahúsi og verknámshúsi til Páls svo hægt sé að setja þau inní þrívíddar umhverfið ásamt mismunandi staðsetningum í Árnesi.

 

2. Envalys kemur inná fundinn og kynnir Árnes í 3D

 

Páll Jakob líndal kemur inná fundinn í gegnum fjarfundarbúnað. Rætt um skipulagið á komandi íbúafundi og farið yfir skipulagið á fundinum.

 

3. Forgangsröðun verkefna

 

Eftirfarandi verkefni þarf að vinna áfram.

  • Vinna þarf að því að ákveða hvar íþróttahús og verknámshús verði staðsett í Árnesi.
  • Halda þarf áfram með þarfagreiningu fyrir húsin.
  • Vilborg og Lilja eru búnar að fara í heimsóknir í önnur verknámshús og skipuleggja þarf fleiri heimsóknir
  • Hefja þarf þarfagreiningu á íþróttahúsi og skipuleggja heimsókn í nokkur íþróttahús til að skoða stærðir og aðbúnað húsa sem eru í rekstri í dag.
  • Búið er að ákveða innraskipulag Þjórsárskóla frá og með næsta skólaári og tryggja þarf iðnaðarmenn í þá breytingar sem þarf að fara í í vor og sumar.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:35.

Næsti fundur ákveðinn fimmtudaginn 21. mars kl. 9:30

 

Þeir fulltrúar sem voru á fundinum staðfesta fundargerðina með rafrænni undirritun.

Rafræn undirritun eftirfarandi fulltrúa í stjórn staðfestir að viðkomandi var ekki á fundinum en hefur kynnt sér fundargerðina: