- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Fjárréttir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 2017 Skaftholtsréttir, föstudaginn 15. september. Fé rekið inn kl. 11:00. Reykjaréttir, laugardaginn 16. september. Fé rekið inn kl. 09:00. Ökumenn eru beðnir að sýna þolinmæði því óhjákvæmilegar tafir vegna fjárrekstra verða á vegi 32 - Þjórsárdalsvegi.
Föstudag 15. sept. verða tafir á Þjórsárdalsvegi nr. 32 vegna fjárrekstra. - Fossnes—Skaftholtsréttir kl. 07:30 til kl. 13:00 (hjáleið þó fær um Löngudælaholt og Hamarsheiði) "gamla veginn."
Ennfremur kl. 16:00 -18:00 í dag, verður Þjórsárdalsvegur nr. 32 lokaður frá veganótum við Skeiða og Hrunamannaveg ( 30) Sandlækjarholt að Árnesi. Lokunin er gerð til að minnka slysahættu sem hefur orsakast undanfarin ár samhliða stigvaxandi umferð um Þjórsárdalsveg.
Laugardaginn 16. sept geta orðið lítilsháttar tafir frá kl. 13:00 á Skeiðavegi, nr. 30. frá Reykjaréttum og eitthvað niður Skeið.