- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Auglýst er eftir rekstraraðila/-aðilum til að annast rekstur Þjóðveldisbæjarins í Þjórsárdal. Á bænum er lifandi sýning á sumrin, þar sem gestir upplifa forna lífshætti í gegnum líf og leiki.
Hlutverk rekstraraðila er að annast rekstur Þjóðveldisbæjarins og tryggja upplifun og þjónustu til ferðamanna. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af rekstri í ferðaþjónustu sem og brennandi áhuga á uppbyggingu á menningartengdri ferðaþjónustu.
Áhugasöm eru beðin um að senda inn umsókn og/eða fyrirspurnir á info@thjodveldisbaer.is fyrir 6. nóvember nk. Óskað er eftir upplýsingum um bakgrunn umsækjenda sem og hugmyndum um rekstur og uppbyggingu á svæðinu.