- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Skeiða- og Gnúpverjahreppur auglýsir til leigu rekstur félagsheimilisins Árness frá og með vori 2021. Um er að ræða leigu á félagsheimilinu Árnesi og því sem fylgir. Í húsinu er framleiðslueldhús og salarkynni fyrir veitingarekstur sem rúmar allt að 360 manns. Umsóknum skal skila eigi síðar en 8. desember 2020 á netfangið kristofer@skeidgnup.is eða í lokuðu umslagi merkt Árnes 2021. Nánari upplýsingar veitir Kristófer Tómasson sveitarstjóri. Sími 486-6100. netfang: kristofer@skeidgnup.is
Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um menntun og reynslu umsækjanda.
Sveitarstjóri