Gjöf frá Björgunarsveitinni

Hér tekur Anna Greta Ólafsdóttir leikskólastjóri við veglegri gjöf frá Björgunarsveitinni Sigurgeir,…
Hér tekur Anna Greta Ólafsdóttir leikskólastjóri við veglegri gjöf frá Björgunarsveitinni Sigurgeir, sem var afhent af Rebekku Sif Gunnþórsdóttur

Þau Rebekka og Björn Axel frá Björgunarsveitinni Sigurgeir komu færandi hendi í leikskólann í morgun og gáfu leikskólanum vesti svo börnin séu vel sýnileg í gönguferðum í leikskólanum. Auk þess gáfu þau börnunum endurskinsmerki og minntu á mikilvægi þess að vera sýnileg í umferðinni og á mikilvægi þess að nota hjálm þegar þau eru að hjóla.