Kvöldsól í Árnesi
Sunnudaginn 2.október kl. 20:00 verður haldinn íbúafundur í félagsheimilinu í Árnesi.
Dagskrá:
-
Magnús Orri Marínarson Schram kynnir Fjallaböðin og tengd verkefni en framkvæmdir hófust í sumar og mun ljúka 2025.
-
Hvað hefur gerst síðan ný sveitarstjórn tók við 1.júní ?
-
Framtíðarhorfur – hvert stefnum við næstu árin ?
-
Rekstur sveitarfélagsins. Hvernig stendur Skeiða- og Gnúpverjahreppur sig í dag og í samanburði við önnur sveitarfélög ?
-
Skólamál. Hvaða tækifæri höfum við til að efla skólastarf í sveitarfélaginu? Hvernig mótum við framtíðarsýn í menntun barnanna okkar? Kynning á skólaþingi sem fer fram 19.nóvember.
Allir velkomnir