Kynningarfundir vegna framkvæmda

Hvammsvirkjun
Hvammsvirkjun

Landsvirkjun boðar til kynningarfunda fyrir íbúa í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi dagana 19. og 20. nóvember nk.

Sveitarfélögin tvö hafa nú veitt framkvæmdaleyfi vegna Hvammsvirkjunar og Rangárþing Ytra hefur veitt framkvæmdaleyfi vegna vindorkuvers við Vaðöldu. Á fundunum verður farið yfir helstu framkvæmdir Landsvirkjunar í sveitarfélögunum á næstunni. Þá munu fulltrúar Vegagerðarinnareinnig skýra frá áformum um framkvæmdir sínar.

Rangárþing ytra
Kynningarfundurinn verður haldinn á Landhóteli við Landveg
þriðjudaginn 19. nóvember kl. 17:30.

Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Kynningarfundurinn verður haldinn í Árnesi við Þjórsárdalsveg
miðvikudaginn 20. nóvember kl. 17:30.

Landsvirkjun vonast til að sjá sem flesta íbúa á fundunum.

Á þeim framkvæmdatíma sem nú er að renna upp verður ítarleg upplýsingagjöf leiðarljós okkar, bæði á fundum og á vef Landsvirkjunar.
Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar geta sent spurningar fyrir fram á netfangið spurningar@landsvirkjun.is fyrir mánudaginn 18. nóvember. Reynt verður að svara sem flestum þeirra á fundinum