- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-8. bekk. Nemendur eru rétt rúmlega 50 talsins og er þeim kennt í þremur kennsluhópum . Í Þjórsárskóla er lögð áhersla á sjálfbærni, nýsköpun, útikennslu og umhverfið. Skólinn er stækkandi og stefnir í heildstæðan grunnskóla eftir tvö ár. Mikil þróun og vinna er í gangi við húsnæði og aðstöðu sem gefur mörg skemmtileg tækifæri í þróun kennsluhátta í samræmi við skólastefnu Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Þjórsárskóli er í tæplega 100 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Á heimasíðu skólans, www.thjorsarskoli.is, eru frekari upplýsingar um skólann og starfsemi hans.
Óskum eftir kennurum í eftirfarandi stöður:
Íþróttir, útinám, jóga og list og verkgreinar. Um er að ræða tvær 100% stöður, kennslan er í 1.-8. bekk og miðast við frá 1. ágúst 2024.
Tvær 80 % stöður á yngsta stigi. Helstu verkefnin eru umsjónarkennsla á yngsta stigi og stöðvakennsla í 1.-4.bekk
Umsjónarkennari á miðstígi, 100 % staða, helstu verkefni eru íslenska, samfélagsfræði, danska og enska í 5.-8.bekk.
20% deildastjóri fyrir yngsta stig. Leitað er að kennara með reynslu af stöðvavinnu, fjölbreyttum kennsluháttum, námsgagnagerð og með góða þekkingu og reynslu á lestrakennslu.
20% deildastjóri fyrir miðstig og stoðþjónustu. Leitað er eftir sérkennara, skólasálfræðingi með kennsluréttindi og með reynslu af sérkennslu og almennri kennslu í grunnskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur
Fólk, óháð kyni, er hvatt til að sækja um.
Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.
Nánari upplýsingar veitir Bolette Höeg Koch, skólastjóri, sími 895 9660 netfang : bolette@thjorsarskoli.is
Umsóknarfrestur er til 13. maí 2024. Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá, prófskírteinum, sakavottorði og upplýsingum um fyrri störf sendist í tölvupósti á bolette@thjorsarskoli.is.