Lokanir og tafir á vegum

Kannast einhver við þetta fólk?
Kannast einhver við þetta fólk?

Búast má við umferðartöfum v. fjárrekstrar á Þjórsárdalsvegi (nr.32)  frá hádegi og fram eftir degi fimmtudaginn 12. september, allt frá Búrfelli og að Ásólfsstöðum.

Föstudaginn 13. september má búast við töfum á Þjórsárdalsvegi frá Ásólfstöðum að Skaftholtsréttum á milli kl. 6.00 til ca. 12.00

Tafir verða á milli Bólstaðar og Sandlækjarholts frá kl. 16 - 18 föstudaginn 13. september vegna fjárrekstrar og búast má við umferðartöfum fyrir ofan og neðan þetta svæði þann dag.

Búast má við umferðartöfum á Skeiðavegi (nr. 30), laugardaginn 14. september v. fjárrekstra úr réttum.

Skrifstofa Skeiða- og Gnúpverjahrepps verður lokuð föstudaginn 13. september og gámasvæðið í Árnesi verður lokað laugardaginn 14. september vegna rétta í sveitarfélaginu.
 
Að lokum: Munum að þessa helgi er allajafna mikil umferð ríðandi vegfarenda og farið að skyggja snemma á kvöldin - förum varlega öllsömul, vel merkt í myrkrinu og alltaf edrú og þolinmóð undir stýri svo öll eigi góða helgi og komist heil heim 🙂