- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Nú hefur Skaftholt hætt móttöku á garðaúrgangi og tjágreinum. Nýir staðir eru fundnir fyrir trjágreinar og við ítrekum að þar má eingöngu setja trjágreinar! Annars vegar er það til hliðar við gámasvæðið í Árnesi (við Tvísteinabraut) og hins vegar í landi Húsatófta á Skeiðum nokkru ofar en Hestakráin ( sömu megin vegar) og er vel aðgengilegt af þjóðvegi nr. 30. Opið er á báðum svæðum, allan daginn, alla daga.
Nýir staðir fyrir garðaúrganginn verða á báðum gámasæðunum og getur fólk komið með garðaúrgang, þ.e illgresi og annað, þangað á opnunartímum gámasvæðanna.
Með góðri kveðju.
Sveitarstjóri.