Skeiða- og Gnúpverjahreppur kærir virkjanaleyfi Búrfellslundar

Vindmylla
Vindmylla

Skeiða- og Gnúpverjahreppur hefur í dag lagt inn kæru til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem farið er fram á að virkjunarleyfi sem Orkustofnun gaf út þann 12. ágúst fyrir 120 MW Búrfellslundi verði fellt úr gildi.

Að mati Skeiða- og Gnúpverjahrepps er málsmeðferðin á öllum stigum málsins ekki í samræmi við lög. Þar er átt við afgreiðslu Alþingis, málsmeðferð Skipulagsstofnunar ásamt umfjöllun Orkustofnunar áður en virkjanaleyfið var gefið út.

Eins og kemur fram í kærunni, þá hefur sveitarfélagið mótmælt fyrirhuguðum Búrfellslundi á öllum stigum í málsmeðferðinni frá því Alþingi tók ákvörðun um að setja Búrfellslund í nýtingarflokk í rammaáætlun í júní 2022. Mikilvægt er að uppbygging orkumannvirkja sé unnin í sátt og samráði við nærsamfélagið og nauðsynlegt er að klára stefnumörkun í vindorku ásamt tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga áður en fyrsta vindorkuverið verður byggt á Íslandi.

Meðfylgjandi er kæran ásamt fylgigögnum í viðhengjum.

ÚUA Kæra Búrfellslundur- SogGn 
A.M202305-0041_Umsögn til Orkustofnunar vegna virkjanaleyfi Búrfellslundar
B.M202305-0041_Minnisblað um álit Skipulagsstofnunar
C.M2023-0041_Skipulagsstofnun svar v. tilkynningar um frestun ákvörðunar um landnotkun fyrir Búrfellslund
D.Hljóðvistarútreikningar og skuggaflökt Umsókn
E.Umboð