Skrifstofan lokuð fimmtudaginn 27. júní

Skrifstofa sveitarfélagsins í Árnesi verður lokuð á morgun, fimmtudaginn 27. júní vegna vinnuferðar í Gljúfurleit á Gnúpverjaafrétti. 

Á vorin þarf að yfirfara skálana, þrífa þá eftir veturinn, lagfæra gerði og í sumum tilvikum tengja vatn. Í Gljúfurleit stefnum við á að tengja vatn í ný klósetthús sem flutt voru í Gljúfurleit í fyrra haust. 

Vonum að þetta valdi ekki óþægindum.