- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Skrifstofa Skeiða-og Gnúpverjahrepps verður lokuð fimmtudaginn 13. október og föstudaginn 14. október vegna ferðar starfsfólks á Fjármálaráðstefnu Sveitarfélaga, sem haldin er í Reykjavík þessa daga.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga er stór ráðstefna ætluð fyrir starfsfólk og sveitarstjórnarfólk þar sem fyrri daginn er farið yfir ýmis sameiginleg verkefni sveitarfélaganna. Seinni daginn er svo boðið upp á tvær málstofur þar sem annarsvegar er til umfjöllunar Tekjustofnar og fjármálastjórn sveitarfélaga og hinsvegar Uppbygging innviða og íbúða.