Aðalfundur Vatnsveitufélagsins Suður-Fall

Hvítá
Hvítá

Aðalfundur Vatnsveitufélagsins Suður-Fall verður haldinn mánudaginn 3. febrúar 2025 kl. 20:00 í gamla bókasafninu í Brautarholti.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Ársreikningar lagði fram.
  3. Framkvæmdir framundan.
  4. Kosning um tillögu stjórnar um að óska eftir því að Skeiða- og Gnúpverjahreppur taki yfir rekstur Vatnsveitufélagsins Suður-Fall.
  5. Kosning í stjórn og endurskoðendur(skoðunarmenn)

Á fundi stjórnar Vatnsveitufélagsins Suður-Fall fimmtudaginn 9. janúar samþykkti stjórn samhljóða eftifarandi bókun:

Núverandi stjórn telur að rekstri veitunnar til framtíðar sé betur kominn í höndum sveitarfélagsins. Stjórn leggur því til að á næsta aðalfundi verði lögð fram tillaga til samþykktar um að óska eftir því við Skeiða- og Gnúpverjahrepp að taka yfir veituna, allar eignir, skuldir, réttindi og skyldur félagsins. Með því móti verði tryggður betri rekstur á veitunni og að uppbyggin veitunnar til framtíðar sé tryggð.

Samkvæmt samþykktum félagsins voru stofnendur félagsins 25 talsins ásamt því að teknir hafa verið löglega inn í félagið 17 nýir félagar samkvæmt fundargerðarbók. Löglegir félagsmenn eru því 42 talsins.

Til þess að aðalfundur verði löglegur samkvæmt samþykktum félagsins þarf minnst helmingur félagsmanna að sækja fundinn. Hafi tvisvar verið boðað til aðalfundar, vegna ónógrar fundarsóknar, telst þriðji fundurinn lögmætur, hver sem fundarsókn er. Ef þörf verður að boða fund aftur, skal stefna að öðru fundarboði 17. febrúar og þriðja fundarboði 3. mars.

 

Stjórn Suður Falls