- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Í lok janúar var lokið við álagningu fasteignagjalda í Skeiða- og Gnúpverjahrepp og var keyrður út 2. gjalddagi núna um síðustu mánaðarmót. Í einhvejrum tilfellum virðist hafa komið vitlaus eindagi á reikninga fyrirtækja, þannig að bæði gjalddagi og eindagi lentu á sama daginn. Það ætti að vera búið að laga það í flestum tilvikum, en mikilvægt er að láta vita ef svo er ekki.
Eins og áður má finna álagningaseðil ársins með yfirliti yfir gjalddaga ársins, inni á Island.is -en kröfuseðill hvers gjalddaga birtist undir rafræn skjöl á heimabanka einstaklinga.