- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur Samkvæmt 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur aðalskipulagsbreytinga og skipulagslýsingar eftirfarandi skipulagsáætlana:
https://www.utu.is/skipulagsauglysing-sem-birtist-19-januar-2022/
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 4. nóvember 2021 að kynna skipulagslýsingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Í breytingunni felst breytt notkun landbúnaðarlands í verslunar- og þjónustusvæði. Með breytingunni stækkar núverandi verslunar- og þjónustusvæði VÞ14 sem tekur til ferðarþjónustustarfsemi að Einiholti 1.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 6. janúar 2022 að kynna tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breyttrar landnotkunar innan Skálholtsjarðar. Í breytingunni felst breytt landnotkun á landbúnaðarlandi í skógræktarsvæði.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 12. janúar 2022 að kynna skipulagslýsingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 og nýs deiliskipulags í landi Miðhúsa. Svæðið sem um ræðir er á landi Miðhúsa 1 og 2 og liggur beggja vegna Þjórsárdalsvegar (nr. 32). Aðalskipulagsbreytingin felur í sér breytta afmörkun og minnkun á frístundabyggð F39. Svæðið neðan vegar minnkar um u.þ.b. 10 ha en svæðið ofan vegar stækkar um um það bil 5 ha.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 13. janúar 2022 að kynna tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur til Hlíðar spildu 1 í Hrunamannahreppi. Í breytingunni felst stækkun frístundasvæðis og skilgreining skógræktar- og landgræðslusvæðis.
Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 12. janúar 2022 að kynna tillögu deiliskipulagsbreytingar sem tekur til frístundasvæðis að Flötum, Réttarholti. Í breytingunni felst m.a. stækkun skipulagssvæðis og fjölgun lóða á svæðinu
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. desember 2021 að kynna deiliskipulagstillögu sem tekur til lóðar Álfhóls, L210521. Í deiliskipulaginu felst m.a. skilgreining tveggja byggingarreita þar sem gert er ráð fyrir byggingarheimildum fyrir íbúðarhús, tvö minni hús allt að 60 fm, fjölnotahús tengt atvinnurekstri allt að 600 fm og skemmu/skýlis í tengslum við skógrækt.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 13. janúar 2022 að kynna deiliskipulagstillögu sem tekur til deiliskipulags Ásgarðs í Kerlingarfjöllum. Unnið er nýtt deiliskipulag á grunni gildandi skipulags af svæðinu. Meginmarkmið nýs deiliskipulags er að sníða ramma utan um ferðaþjónustu Fannborgar í Kerlingarfjöllum og tryggja þróun hennar til framtíðar í sátt við einstaka náttúru. Markmiðin eru þau sömu og markmið gildandi deiliskipulags en útfærð nánar fyrir svæði Fannborgar. Í þeim felst að bæta þjónustu við ferðamenn og auðvelda þeim sem sækja svæðið að njóta útivistar og náttúrufars án þess að valda röskun eða tjóni á lífríki svæðisins. Hugað verði sérstaklega að gönguleiðum innan svæðisins og þær tengdar við leiðir sem liggja fyrir utan skipulagsmörkin. Að bæta gistiaðstöðu og bjóða fjölbreytta gistingu til að koma til móts við ólíkar óskir ferðalanga. Að nýta og gera heilsteyptara það svæði sem þegar hefur verið tekið til ráðstöfunar.
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 13. janúar 2022 að auglýsinga tillögu sem tekur til breytinga á deiliskipulagi frístundasvæðis að Laufskálabyggð. Í breytingunni felst stækkun og sameining lóða Laufskálabyggðar 2 og 4 ásamt stækkun Laufskálabyggðar 1. Einnig breytist aðkoma lóða 1, 2 og 3 innan svæðisins auk þess sem breytingar eru gerðar á skipulagsskilmálum innan svæðisins.
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 11. janúar 2022 að auglýsa deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi að Mosató 3 L225133. Í breytingunni felst aukið byggingarmagn á lóð hótelsins.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni http://www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna: https://www.blaskogabyggd.is/ , https://www.floahreppur.is/, https://www.fludir.is/, https://www.gogg.is/ og https://www.skeidgnup.is/
Mál nr. 1 – 7 innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 19. janúar 2022 til og með 8. febrúar 2022.
Mál nr. 8 – 10 innan auglýsingar eru auglýst frá 19. janúar 2022 til og með 3. mars 2022.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið vigfus@utu.is
Vigfús Þór Hróbjartsson
Skipulagsfulltrúi UTU