Breytingar hjá Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Sylvía Karen Heimisdóttir tekur við sem sveitarstjóri

Sylvía Karen Heimisdóttir - sveitarstjóri
Sylvía Karen Heimisdóttir - sveitarstjóri

Á fundi sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps í gær, miðvikudaginn 22. maí, lagði Haraldur Þór Jónsson, oddviti og sveitarstjóri, fram tillögu að nýju skipuriti fyrir sveitarfélagið og óskaði jafnframt eftir því að fjármálastjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Sylvía Karen Heimisdóttir, tæki við starfi sveitarstjóra frá og með deginum í gær og út kjörtímabilið.

Síðustu tvö ár hefur Haraldur Þór Jónsson sinnt bæði starfi oddvita og sveitarstjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Á þessum tveimur árum hefur náðst mikill árangur í rekstri sveitarfélagsins og uppsafnaður rekstrarafgangur síðustu tveggja ára er rúmar 252 milljónir og veltufé frá rekstri rúmar 372 milljónir. Skuldahlutfall sveitarfélagsins hefur lækkað verulega og stendur síðustu áramót í 36,9% og veltufé frá rekstri er komið upp í 17,3%. Sveitarfélagið stendur því sterkt til að takast á við þá miklu uppbyggingu sem er að fara af stað á næstu mánuðum. Búið er að innleiða nýtt skjala- og málakerfi, stjórnsýslan orðin rafræn og var sveitarfélagið fyrst sveitarfélaga í Árnessýslu til að taka upp full rafræn skil á öllum gögnum. Stjórnsýsla sveitarfélagsins hefur eflst og býr sveitarfélagið yfir öflugum hópi af starfsfólki. Einnig hefur á sama tíma náðst mikill árangur í þeirri umræðu að tryggja sveitarfélögum með orkuframleiðslu ávinning af þeirri starfsemi, en í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hefur mest raforka verið framleidd á Íslandi og núverandi raforkuframleiðsla í sveitarfélaginu dugar öllum heimilum og fyrirtækjum á Íslandi, að undanskilinni stóriðjunni.

Sveitarstjórn samþykkti samhljóða nýtt skipurit og staðfesti ráðningu Sylvíu Karen Heimisdóttur sem sveitarstjóra og að Haraldur Þór Jónsson starfi áfram sem oddviti í 100% starfi ásamt því að staðfesta verkaskiptingu milli oddvita og sveitarstjóra samkvæmt nýju skipuriti. Sylvía Karen hefur því tekið við ábyrgð á daglegum rekstri sveitarfélagsins. Sylvía Karen hefur starfað hjá sveitarfélaginu frá sumrinu 2020 og sinnti m.a. starfi sveitarstjóra frá 2021-2022.

Haraldur Þór Jónsson mun starfa áfram sem oddviti í fullu starfi og bera ábyrgð á því að leiða þá uppbyggingu sem er fram undan í sveitarfélaginu, en í samþykktri fjárhagsáætlun sveitarfélagsins er gert ráð fyrir fjárfestingum á næstu tveimur árum fyrir 1,4 milljarð króna.