- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Byggðaþróunarfulltrúi í Uppsveitum Árnessýslu
Sveitarfélögin Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga auglýsa laust til umsóknar starf byggðaþróunarfulltrúa.
Byggðaþróunarfulltrúi veitir ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar, auk þess kemur hann að ferðatengdum málum og fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir verkefnum í samráði við sveitarfélögin fjögur og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Einnig starfar fulltrúinn með samstarfshópi samtakanna og öðrum byggðaþróunarfulltrúum á Suðurlandi.
Um er að ræða allt að 100% starfshlutfall og hefur viðkomandi starfsaðstöðu á skrifstofum Bláskógabyggðar í Aratungu, Reykholti. Næsti yfirmaður er sveitarstjóri Bláskógabyggðar.
Hlutverk byggðaþróunarfulltrúa
Hæfniskröfur
Æskilegt er að viðkomandi hafi fasta búsetu í Árnessýslu og geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 6. júlí 2023. Umsókn skal skilað stafrænt á Alfreð (www.alfred.is) og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita Ásta Stefánsdóttir (asta@blaskogabyggd.is) 480-3000 og Þórður Freyr Sigurðsson (thordur@sass.is ) 480-8200.