- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Lagt verður upp í Sandleit miðvikudaginn 31. ágúst. og í eftirsafn miðvikudaginn. 14. september.
Guðmundur Árnason mun mun stjórna smalamennskum þetta haustið, bæði sem fjallkóngur í fjallsafni og foringi í eftirsafni. Fjallskilasjóður sér fyrir mat og heyi í allar leitir.
Skaftholtsréttir eru föstudaginn 9. september og verður safnið rekið inn kl. 11.00.
Fjallmenn eru beðnir að merkja föggur sínar vel og hafa samband við trússara og láta vita hvar föggur þeirra verða.
Ef gulu fjallmannavestin liggja heima hjá einhverjum eru þeir vinsamlegast beðnir um að skila þeim sem fyrst.
Reykjaréttir eru laugardaginn 10. september og hefjast kl. 9.00. að réttum loknum verður féð flutt í Skaftholtsréttir og dregið þar í sundur.
Landeigendur athugið:
Almennur smaladagur er 24. september og skilarétt í Skaftholtsréttum þann 25. september. Í fjallskilareglugerð á www.skeidgnup.is eru landeigendur hvattir til þess að hafa eftirfarandi grein reglugerðarinnar í huga á almennum smaladegi: Hverjum bónda ber að hreinsa vel heimalönd sín af öllum óskilum við hverja almenningssmölun og halda öllu fé annarra sem best til skila.”
Sandleit:
Þjórsárholt: fjallkóngur Guðmundur Árnason
Eystra-Geldingaholt: Jón Bragi Bergmann
Steinsholt 1, Trúss: Gylfi Sigríðarson
Norðurleit:
Steinsholt 1: Óttar Már Bergmann
Steinsholt 1: Hrafnhildur Jóhanna B. Sigurðardóttir
Steinsholt 1: Sveinn Sigurðarson
Eystra-Geldingarholt: Anna Birta Schougaard
Trúss: Inga María Guðmundsdóttir og Jónas Jónmundsson
Dalsá:
Stóri Núpur: Stefanía Einarsdóttir
Stóri Núpur: Valgerður Einarsdóttir
Skarð: Sigurður Unnar Sigurðsson
Skarð: Magnús Arngrímur Sigurðsson
Gunnbjarnarholt: Haukur Arnarsson
E-Geldingaholt: Einar Hugi Ólafsson
E-Geldingaholt: Sigurþór Ingólfsson
Þrándarholt: Ingvar Þrándarson
Þrándarholt: Björn Hrannar Björnsson
Brúnir: Lilja Loftsdóttir
Laxárdalur: Linda Ósk Högnadóttir
Laxárdalur: Högni Jökull Atlason
Ásar: Jón Hákonarson
Steinsholt 1: Gígja Sigurðardóttir
Minni Mástunga: Finnbogi Jóhannsson
Laxárdalur, truss: Atli Eggertsson,
Aukamenn að Dalsá: Baldur Már Jónsson, Brynjar Már Björnsson
Eftirsafn:
Þjórsárholt: Guðmundur Árnason foringi.
Steinsholt l: Sigurður Loftsson
Stóra-Mástunga: Haukur Haraldsson
Þrándarholt: Björn Axel Guðbjörnsson
Fossnes: Sigrún Bjarnadóttir
Fossnes: Bjarni Arnar Hjaltason
Ljóskolluholt: Birkir Þrastarson
Skarð: Ástráður Unnar Sigurðsson
Hæll 1: Helga Höeg Sigurðardóttir
Óráðstafað:
Tveir ríðandi í eftirsafn allan tímann og einn ríðandi Gljúfurleit – Hólaskógur 17. september.
Trúss í eftirsafn
Matráður Dalsá
Tveir smalar Dalsá
Eftir að búið er að draga fyrsta innrekstur í Skaftholtsréttum verður gert 30 mínútna kaffihlé og næsti rekstur rekinn inn eftir það!