Fjölmenningarhátíð í Uppsveitunum

Barnastarf verður í boði á hátíðinni - hér er mynd af perlum
Barnastarf verður í boði á hátíðinni - hér er mynd af perlum

Komdu og upplifðu spennandi heim fjölbreyttra menningarheima í Aratungu sunnudaginn 3. nóvember

Á hátíðinni gefst einstakt tækifæri til að kynnast siðum og hefðum frá ýmsum löndum og samfélögum. Við verðum með kynningarbása þar sem gestir geta fræðst um ólík lönd, fengið upplýsingar um afþreyingu í Uppsveitunum og kynnst ólíkum menningararfi.

Hverju má búast við?
- Kynningarbásar þar sem fólk deilir menningu sinni og þjóðararfi
- Hægt að fá smá smakk af mat og drykkjum frá ýmsum heimshornum
- Hægt að kynna sér hvaða afþreying er í boði í Uppsveitunum

Hittumst og njótum saman í skemmtilegu og fræðandi andrúmslofti
Hvort sem þú hefur áhuga á að læra um nýja menningu, kynna þér afþreyingu í boði eða einfaldlega að njóta góðs félagsskapar þá er þetta viðburður sem þú vilt ekki missa af!
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!
Við hlökkum til að sjá ykkur og fagna fjölbreytileikanum með ykkur!

 

Frekari fr