Framleiðsla á gluggum og hurðum fyrir íþróttamiðstöð

Útboð – Framleiðsla á gluggum og hurðum fyrir íþróttamiðstöð.

Skeiða- og Gnúpverjahreppur býður út verkið framleiðsla á gluggum og hurðum fyrir íþróttamiðstöð í Árnesi. Verkið felur í sér framleiðslu á gluggum og hurðum úr áli í mismunandi stærðum.

Helstu magntölur eru:

Samsettir gluggar í mismunandi stærðum: 35 stk.

Hurðar í mismunandi stærðum: 13 stk.

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með laugardeginum 1. febrúar 2025. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Harald Þór Jónsson með tölvupósti á netfangið haraldur@skeidgnup.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Árnesi, 804 Selfossi fyrir kl. 10:00 mánudaginn 17. febrúar 2025, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.