Fundargerð sveitarstjórnar

Seinni sveitarstjórnarfundur aprílmánaðar verður haldinn núna á miðvikudaginn 16. apríl. Þar sem undirrituð ætlar að þjófstarta páskafríinu kemur fundargerðin ekki inn á heimasíðuna fyrr en eftir páskafrí. 

Við biðjumst velvirðingar á þessu ef það veldur einhverjum vandræðum, fyrir þá sem eru viðþolslausir af spennu má senda póst á oddvitann: haraldur@skeidgnup.is og óska eftir fundargerðinni beint. 

Annars vonum við að þið finnið eitthvað annað lesefni og eigið gleðilega páska! 
kv. Hrönn vefumsjónarkonar