Fundur um Þjóðgarð á hálendinu 27 ágúst kl 17 - ath breyttur fundartími

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið boðar til fundar um þjóðgarð á miðhálendi Íslands í Félagsheimilinu Árnesi mánudaginn 27 ágúst. Kl 17:00.

 

Formaður miðhálendisnefndar Óli Halldórsson kynnir verkefni nefndarinnar og fer yfir tímarás verkefnisins. Að framsögu hans lokinni mun hann leitast við að svara fyrirspurnum.

 

Vakinn er sérstök athygli á að fundurinn hefst kl 17:00, en ekki kl 18:00 eins og misritaðist í fyrri boðum.

 

 

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið.