- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Laus staða umsjónarkennara í 5 bekk í Þjórsárskóla. Kennt er í litlum hópum yngri sér ( 1.-4.) og eldri sér ( 5.-7.). Við leggjum upp úr sjálfbærni, að nýta það efni sem við fáum í Þjórsárdalsskógi og einnig að gefa gömlum hlutum nýtt líf. Aðal kennslugreinar eru náttúrufræði, samfélagsfræði og stærðfræði, reynsla er æskileg.
Gerð er krafa um grunnskólakennaramenntun og lipurð í mannlegum samskiptum. Reynsla á yngsta og miðstigi æskileg.
100 % staða frá 1 ágúst nk tímabundið í eitt ár. Möguleiki á framlengingu
Umsóknarfrestur til 30.maí 2017.
Nánari upplýsingar veitir Bolette Höeg Koch skólastjóri sími 895 9660 netfang : bolette@thjorsarskoli.is
Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-7. bekk. Nemendur eru tæplega 50. Þeim er kennt í fjórum kennsluhópum. Í Þjórsárskóla er lögð áhersla á nýsköpun, útikennslu og umhverfið. Yfirmarkmið skólans er að skila landinu til komandi kynslóða í betra ástandi en við tókum við því.
Vefslóð www.thjorsarskoli.is
Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er 611 íbúar. Þéttbýliskjarnar eru við Árnes og á Brautarholti. Í hreppnum eru náttúruperlur á borð við Þjórsárdal. Þjórsárskóli er í tæplega 100 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.