- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Frá sveitarstjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepps:
Kjörskrá Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna Alþingiskosninga 25. september 2021 mun liggja frammi á skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps frá 15. september nk. Skrifstofan er sem áður opin frá 9 - 12 alla virka daga og á milli 13-14 mánudaga - fimmtudaga.
Frá kjörstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps:
Kjörfundur í Skeiða- og Gnúpverjahrepp vegna alþingiskosninga þann 25. september 2021 verður haldinn í Félagsheimilinu Árnesi frá kl. 10 -22. Kjósendur geri grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd.