- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Haldinn var landnámsdagur í Skeiða - og Gnúpverjahreppi í dag 14 júní.
Dagskráin hófst við minnismerkið að Áshildarmýri, Þar fór fram afhending svæðisins þar sem þinghaldið fór fram á árum áðum. Það var Árnesingafélagið sem afhendti svæðið til Héraðsnefndar Árnessýslu, Opið hús var í Þrándarholti og Mön. Í Þjóðveldisbænum var mikil dagskrá, Víkingaslagur, sögustund, hljóðfæraleikur, kjötsúpa, örmessur og fleira. Skilti um Ferjustaðinn í Þjórsárholti var afhjúpað í Þjórsárstofu.
Dagskráin tókst í alla staði vel. Þökk sé Landnámsdagsnefndinni og öðrum gestgjöfum.