Laus staða leikskólastjóra í Leikholti

Brautarholt - Leikholt
Brautarholt - Leikholt

Laus er staða leikskólastjóra við Leikskólann Leikholt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Leikskólinn Leikholt er fjögurra deilda leikskóli með um 50 börn á aldrinum 1-6 ára. Á leikskólanum er unnið metnaðarfullt og framsýnt skólastarf í anda nýrrar skólastefnu sveitarfélagsins.

Starfssvið leikskólastjóra er að veita leikskólanum forystu og hafa frumkvæði að þróun starfshátta í samræmi við nýja skólastefnu sveitarfélagsins og lögum um leikskóla, farsældarlög og aðalnámskrá leikskóla. Leikskólastjóri stýrir rekstri og faglegu starfi skólans í góðri samvinnu við yfirstjórn sveitarfélagsins, starfsfólk og foreldra.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Fagleg forysta leikskólans, frumkvæði að þróun, umbótum og innleiðingu nýrra hugmynda og úrræða innan leikskólans í samstarfi við starfsfólk, foreldra og skólanefnd sveitarfélagsins.
  • Sjá um daglegan rekstur og skipulag skólans.
  • Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð í skólamálum innan sveitarfélagsins .
  • Framkvæmd og eftirfylgni með ákvörðunum sveitarfélagsins í leikskólamálum.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu leikskólastjóra.

Hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Framhaldsmenntun í stjórnun.
  • Víðtæk reynsla af skólastarfi og stjórnun.
  • Þekking og reynsla af leikskólastarfi.
  • Áhugi á framsæknu leikskólastarfi.
  • Góður árangur í að leiða áfram breytingar er kostur.
  • Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, þrautseigja og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Frekari upplýsingar veitir Sylvía Karen Heimisdóttir, sveitarstjóri í síma 486-6100 eða í tölvupósti á sylviakaren@skeidgnup.is

Umsóknir ásamt ferilskrá og leyfisbréfi sendist í tölvupósti fyrir 6. júní til sylviakaren@skeidgnup.is