- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Kennarastöður lausar í Þjórsárskóla
Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-7. bekk. Nemendur eru rétt rúmlega 40 talsins og er þeim kennt í fjórum kennsluhópum. Í Þjórsárskóla er lögð áhersla á sjálfbærni, nýsköpun, útikennslu og umhverfið. Við leggjum áherslu á að skapa og endurnýta úr því efni sem við fáum úr umhverfinu í kringum okkur. Yfirmarkmið skólans er að skila landinu til komandi kynslóða í betra ástandi en við tókum við því. Þjórsárskóli er í tæplega 100 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Á heimasíðu skólans, www.thjorsarskoli.is, eru frekari upplýsingar um skólann og starfsemi hans.
Óskum eftir kennara í eftirfarandi stöður:
Íþróttir, útinám, jóga og textilmennt Um er að ræða 75% stöðu kennara í íþróttum, útinámi ,jóga og textílmennt frá 1. ágúst 2023. Ekki er um að ræða sundkennslu.
Umsjónarkennari á yngsta stíg Um er að ræða 85 % stöðu kennara frá 1. ágúst 2023. Helstu verkefni eru umsjónarkennsla með yngsta stíg auk kennslu í íslensku, samfélagsfræði/náttúrufræði. Eining heimilisfræði frá 1-7 bekk.
Menntunar- og hæfniskröfur
Fólk, óháð kyni, er hvatt til að sækja um.
Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.
Nánari upplýsingar veitir Bolette Höeg Koch, skólastjóri, sími 895 9660 netfang : bolette@thjorsarskoli.is
Umsóknarfrestur er til 29.maí 2023. Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá, prófskírteinum, sakavottorði og upplýsingum um fyrri störf sendist í tölvupósti á bolette@thjorsarskoli.is.