- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Myndband um lífið í Skeiða- og Gnúpverjahreppi var gert á dögunum sem hægt er að spila hér. Og nú er það í fullum gæðum. Sjón er sögu ríkari. Verið velkomin til búsetu hjá okkur. Í Árnesi eru 12 einbýlishúsalóðir lausar og þrjár parhúsalóðir og þrjár parhúsalóðir eru lausar á Brautarholti. Góðir skólar eru í sveitarfélaginu, grunnskóli upp í 7. bekk og gjaldfrjáls leikskóli, tvær sundlaugar, blómlegt mannlíf og mikil náttúrufegurð.
Auglýsingastofan ArticProject vann þessa auglýsingu fyrir Skeiða- og Gnúpverjahrepp en Atvinnu- og samgöngunefnd og Menningar- og æskulýðsnefnd útveguðu leikendur og voru tengiliðir við fyrirtækið í vinnunni við gerð auglýsingarinnar.