- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Nú hillir undir að gatnagerð í Brautarholti fari að klárast. Nýtt malbik var lagt á götuna í morgun en einhver lokafrágangur er eftir, lagning gangstétta og kanntsteina og fleira slíkt. Við þetta tækifæri voru ýmsar lagfæringar gerðar á malbiki; gert var við skurðinn norðan við Félagsheimilið í Árnesi og malbikið inn í Bugðugerði í Árnesi lagað. Hér má sjá nokkrar myndir af þessum framkvæmdum dagsins.