- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Skrifað var undir verksamning 11. ágúst 2017 milli Skeiða- og Gnúpverjahrepps og verktakafyrirtækisins Neseyjar ehf. Um er að ræða verkið "Árnes, Brautarholt, gatnagerð og fráveita 2017." Verkið felur í sér malbikun á götum í Árnesi og Brautarholti, gerð gangstétta og steyptra kantsteina. Einnig þarf að setja sandföng og regnvatnsniðurföll sem tengja þarf við núverandi regnvatnslög og jarðvegsskipta þarf hluta vegsniðs. Samningsupphæð samkv. tilboði verktaka er kr. 126.712.760,- og verkinu skal lokið 1. október 2018.
Á myndinni eru þeir Vignir Svavarsson sem skrifaði undir fyrir hönd Neseyjar ehf, Kristófer A. Tómasson, sveitarstjóri fyrir sveitarfélagið og Börkur Brynjarsson, verkfræðingur hjá Tæknisviði Uppsveitanna en hann sá um gerð útboðsgagna.