- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Skeiða- og Gnúpverjahreppur er í hópi sjö sveitarfélaga sem valin hafa verið sem tilraunasveitarfélög í húsnæðismálum.
Tilraunaverkefnið getur meðal annars falið í sér nýbyggingar, endurbætur á eldra íbúðarhúsnæði eða breytingar á atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði.
· Meðal fyrirmynda fyrir verkefninu eru lausnir frá Noregi en stórt hlutfall sveitarfélaga þar hefur tekist á við sambærilegar áskoranir og íslensk sveitarfélög á landsbyggðinni
· Íbúðalánasjóður hvetur tilraunasveitarfélögin til samstarfs við Bríeti, nýstofnað landsbyggðarleigufélag í eigu Íbúðalánasjóðs
· HIn sex sveitarfélögin sem urðu fyrir valinu eru Snæfellsbær, Norðurþing, Hörgársveit, Dalabyggð, Vesturbyggð og Seyðisfjarðarkaupstaður.
Þess er vænst að þátttaka í verkefninu verði til heilla í húsnæðismálum í Skeiða- og Gúpverjahreppi.
Sveitarstjóri