- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Við leitum að áhugasömum námsmanni 18 ára eða eldri í sumarstarf í Uppsveitum Árnessýslu,
til að vinna að verkefnum tengdum heilsueflandi samfélagi og ferðaþjónustu.
Viðkomandi þarf að hafa áhuga á útivist, vera félagslyndur, sjálfstæður og lipur í samskiptum.
Hafa færni í stafrænni miðlun og notkun samfélagsmiðla, þekking á svæðinu er kostur.
Í starfinu felst skemmtileg verkefnavinna, miðlun og kynning.
Sérstaklega áhugavert fyrir námsmenn í lýðheilsu-, íþrótta- frístunda-, ferðamála-, markaðsfræðum, menningarmiðlun eða öðrum skyldum greinum.
Starfið er hluti af atvinnuátaki sveitarfélaganna í samvinnu við Vinnumálastofnun, ætlað námsmönnum sem eru 18 ára og eldri sem eru á milli anna í námi.
Ráðningartíminn er a.m.k. tveir mánuðir og fellur innan tímabilsins 01. júní til 31. ágúst 2020.
Nánari upplýsingar um starfið gefa Gunnar Gunnarsson heilsueflandi@fludir.is
og Ásborg Arnþórsdóttir asborg@ismennt.is
Umsókn ásamt kynningarbréfi og starfsferilsskrá skal jafnframt senda á sömu netföng.
Umsóknarfrestur er til og með 2.júní
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FOSS