- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Tafir verða á umferð á þjóðvegi nr. 32, Þjórsárdalsvegi, vegna fjárrekstra fimmtudaginn 12. september, frá Búrfellsvirkjun og að Fossnesi. Frá kl. 11:00 – 21 :00 en hjáleiðir þó færar að hluta.
Föstudaginn 13. september eru einnig tafir á þjóðvegi nr. 32 frá Fossnesi að Skaftholtsréttum kl. 08:00 – 13:00 en hjáleið fær að hluta um veg nr. 325
Seinni part 13. september verður Þjórsárdalsvegur nr. 32 lokaður frá kl. 16:00 – 18:00 frá Bólstað að Sandlækjarholti, hjáleið aðeins fær um Landsveit!
Laugardaginn 14. september gætu orðið smávægilegar tafir á vegi nr. 30 Skeiðavegi kl. 13:00 og eitthvað fram eftir degi.
Nánari upplýsingar á heimasíðunum
http:// www. skeidgnup.is - http:// www.vegagerdin.is
og á facebook.com/íbúasíða Skeiða-og Gnúpverjahrepps