- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Tafir verða á umferð á þjóðvegi nr. 32, Þjórsárdalsvegi, vegna fjárrekstra fimmtudaginn 10. september, frá Búrfellsvirkjun og að Fossnesi. Frá kl. 11:00 – 21 :00 en hjáleiðir þó færar að hluta. Föstudaginn 11. september eru einnig tafir á þjóðvegi nr. 32 frá Fossnesi að Skaftholtsréttum kl. 08:00 – 13:00 en hjáleiðir eru þó færar að hluta.
Föstudaginn( Skaftholtsréttadag) 11. sept. verður Þjórsárdalsvegur nr. 32 lokaður frá kl. 16:00 – 20:00 frá Bólstað að Sandlækjarholti, hjáleið aðeins fær um Landsveit! Hægt er þó að fara um hjáleið upp úr kl. 18 -19 um Hrunamannahrepp af Sandlækjarholti.
Laugardaginn (Reykjaréttadag) 12. september gætu orðið smávægilegar tafir á vegi nr 30 Skeiðavegi kl. 13:00 og eitthvað fram eftir degi.
Nánari upplýsingar á heimasíðunum
http:// www. skeidgnup.is facebook/íbúsasíða Skeiða-og Gnúpverjahreppur
http:// www.vegagerdin.is