Umhverfis- og tæknisvið uppsveita flutt í nýtt húsnæði

Nýja skrifstofuhúsnæði UTU við Hverabraut 6 á Laugarvatni
Nýja skrifstofuhúsnæði UTU við Hverabraut 6 á Laugarvatni

Í upphafi þessa mánaðar flutti embætti Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita (UTU) skrifstofu sína í nýtt og glæsilegt hús að Hverabraut 6 á Laugarvatni. Húsnæðið er í eigu Bláskógabyggðar og var gamla Smíðahúsið á Laugarvatni fyrirmyndin að nýja húsnæðinu. Eftir er að ganga frá lóðinni og aðkomu að húsnæðinu en það verður gert í sumar.

Hlökkum til að taka á móti ykkur í nýju húsnæði.

Starfsfólk UTU