- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Laugardaginn 16. júní verður byggðarhátíðin Uppspretta haldin í Árnesi. Dagskráin verður fjölbreytt og skemmtileg að vanda og er undirbúningur í fullum gangi. Leikhópurinn Lotta verður á sínum stað, sem og Brokk og skokk ásamt leiktækjum og rétt er að vekja athygli á því að þennan dag verður fyrsti landsleikur Íslands í Hm í fótbolta og verður honum varpað á stóra tjaldið í Árnesi. Fleira verður til skemmtunar sem kynnt verður nánar síðar.
Undanfarin ár hefur dagskrárliðurinn „Bjástrað á bæjunum“ átt sinn „sess“ í hátíðinni. Þar hafa nokkrir góðir sveitungar og gestir komið með ýmsan varning úr fórum sínum til að selja eða sýna. Okkur langar að hvetja þá sem kunna að luma á „afurðum” af einhverju tagi til að gefa sig fram við okkur. Við erum opin fyrir öllu: listmunum, safngripum, matvælum, föndri, hannyrðum eða hverju sem er.
Hægt er að senda nefndinni tölvupóst á menningskeidgnup@gmail.com.
Takið daginn frá, við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Bestu kveðjur,
Menningar- og æskulýðsnefnd