- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Með Upptaktinum eru ungmenni í 5. – 10. bekk hvött til að semja tónlist og þau sem komast áfram taka þátt í tónlistarsmiðju með nemendum skapandi tónlistarmiðlunar við Listaháskóla Íslands, auk þess að vinna að útsetningum undir leiðsögn nemenda Tónsmíðadeildar. Að þessu ferli loknu höfum við eignast ný tónverk sem verða flutt á tónleikum og varðveitt með upptöku. Tónleikar Upptaktsins 2025 verða haldnir í Norðurljósum hinn 11. apríl 2025!
Markmið Upptaktsins
Sköpun: Að stuðla að tónsköpun ungs fólks og hvetja börn og ungmenni til að semja eigin tónlist.
Skráning: Að aðstoða börn og ungmenni við að fullvinna hugmyndir sínar í vinnusmiðju og varðveita þannig tónlistina.
Flutningur: Að gefa börnum og ungmennum tækifæri á að upplifa eigin tónlist í flutningi fagfólks við kjöraðstæður á tónleikum í Hörpu.
Reglur
Börnum og ungmönnum í 5.-10. bekk er heimilt að taka þátt í Upptaktinum og senda inn tónsmíð óháða tónlistarstíl. Þau sem komast áfram taka þátt í vinnustofu með fagfólki.
Lengd tónverks skal vera 1-5 mínútur að hámarki, annaðhvort einleiks eða samleiksverk fyrir allt að 7 flytjendur.
Hugmyndir skulu berast fyrir 21. febrúar 2025 á netfangið upptakturinn@gmail.com með nafni höfundar, aldri, símanúmeri, netfangi, grunnskóla, titli verks og verkinu á nótum og/eða mp3 hljóðskrá.
Hvernig er ferlið?
Dómnefnd Fagmenn sitja í dómnefnd og velja 12-13 verk úr innsendum hugmyndum.
Tónsmiðja Valin verk verða fullunnin í tónsmiðju með tónskáldum og fagfólki í tónlist. Tónsmiðjan fer fram í Listaháskóla Íslands og Hörpu dagana og að því ferli loknu hafa orðið til ný tónverk.
Tónleikar Tónverkin verða síðan flutt á glæsilegri tónleikadagskrá í Hörpu. Tónleikarnir eru hluti af opnunarhátíð Barnamenningar í Reykjavík. Hljóðfæraleik og framkvæmd annast fagfólk í tónlist.
Tónsköpunarverðlaunin Öll verkin sem flutt verða á tónleikunum hljóta tónsköpunarverðlaunin: Upptakturinn 2025.
Meira um Upptaktinn
Upptakturinn er á vegum Hörpu í samstarfi við Barnamenningarhátíð Reykjavíkur, Tónlistarborgina Reykjavík, RÚV og Listaháskóla Íslands. Í samstarfi við Upptaktinn eru einnig Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Tónlistarmiðstöð Austurlands, Garðabær, Borgarbyggð, Mosfellsbær, Kópavogsbær og Menningarfélag Akureyrar.