Útboð - framleiðsla á límtréshúsi með yleiningum

Skeiða- og Gnúpverjahreppur býður út verkið; Framleiðsla á límtréshúsi m/yleiningum. Verkið felur í sér framleiðslu á öllu sem þarf til að reisa límtréshús á steypta plötu, þ.e.a.s. burðarvirki úr límtré, steinullar yleiningar í veggi og þak ásamt öllum festingum, skrúfum, þéttiefni o.s.frv

Helstu magntölur eru:

Burðarvirki fyrir grunnflöt: 2.726,8 fm

Veggeiningar 1.297,7 fm

Þakeiningar 2.933 fm

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 17. september 2024. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Harald Þór Jónsson með tölvupósti á netfangið haraldur@skeidgnup.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps Árnesi, 804 Selfossi fyrir kl. 10:00 þriðjudaginn 8. október 2024, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.