Afréttarmálanefnd Gnúpverja

1. fundur 22. júní 2022 kl. 20:30 - 22:30 Þrándarholt
Nefndarmenn
  • Gylfi Sigríðarson
  • Arnór Hans Þrándarson
  • Helga Høeg Sigurðardóttir
Fundargerð ritaði: Helga Høeg Sigurðardóttir

 

  • Fjallvegasjóður – niðurstöður úr úthlutuninni komu í gær til vegagerðarinnar, fáum frekari upplýsingar eftir helgi
    • Fara á í veginn milli Bjarnalækjar og Kisu
    • Búið að tala við Pierre
    • Gylfi heyrir í Strá ehf
  • Framkvæmdaáætlun:
    • Klósettin við Stöng eiga að fara inn í Gljúfurleit, það þarf fyrst að laga þau í byggð og koma þeim svo upp í Gljúfurleit. Stefnum á að klára þetta fyrir fjallferð
    • Útfæra á framtíðarsýn til næstu ára varðandi fjallkofana. Munum funda sérstaklega um það.
    • Réttir
      • Klára að hækka veggina með torfi
      • Þarf að laga mörg hlið
        • Þarf að komast inn á fjárhagsáætlun 2023
      • Hafa samband við vini Skaftholtsrétta
        • Vinnuframlag
        • Styrkir
      • Framkvæmdaáætlun þarf að vera tilbúin í nóvember – þá verður hún lögð fyrir sveitastjórn
      • Hólaskógur
        • Ath viðhald á girðingum og umhirðu í og umhverfis hesthúss.
      • Magnús Orri vill gjarnan koma að frekari uppbyggingu á fleiri fjallkofum – nauðsynlegt væri þá að vanda vel til samningagerða
    • Næsti fundur verður haldinn í ágúst
      • Undirbúningur fyrir fjallferð
      • Áframhaldandi hugmyndavinna vegna framkvæmdaáætlunar
    • Arnór verður ekki foringi í eftirsafni þar sem hann slasaði sig á öxl. Guðmundur í Þjórsárholti verður foringi í hans stað.

Fundi slitið kl. 22.30