Afréttarmálanefnd Gnúpverja

18. fundur 05. nóvember 2024 kl. 19:30 - 22:00 Árnes
Nefndarmenn
  • Arnór Hans Þrándarson Helga H. Sigurðardóttir og Sigurður Unnar Sigurðsson

1. Uppgjör fjallferða
Gylfi kemur inn á fundinn. Hann leggur fram uppgjör fjallferða 2024.

2. Hugmyndafundur
Farið yfir niðurstöður hugmyndafundar með sauðfjárbændum frá því í vor. Gylfi leggur fram þá punkta sem hann tók á fundinum.

Gylfi fer af fundinum Kl 20.30. Stjórn Starkaðar kemur á fundinn.

3. Framkvæmdaráætlun húsa á Gnúpverjaafrétti
Stjórn Starkaðar leggur fyrir afréttarmálanefnd framkvæmdaáætlun.

Bjarnalækjarbotnar-Sumar 2025
 Byggja hesthús/reiðtygjageymslu
 Skipuleggja vatnsmál
 Skipuleggja breytingar á gangnamannahúsinu

Sumar 2026
 Breytingar á gangnamannahúsinu
 Koma rennandi vatni inn í hús-

Sumar 2027
 Laga klósett mál

Fyrirhugað er að kaupa efni í hesthús/reiðtygjageymslu fyrir n.k. áramót og nota til þess þær fjárveitingar sem búið var að gefa vilyrði fyrir frá sveitarfélaginu til viðhalds og uppbyggingar í Bjarnalækjarbotnum. Til þess að ljúka byggingu mannvirkisins áætlar félagið að 2.000.000kr vanti upp á.


Gljúfurleit-Sumar 2025
 Setja upp kamínu sem húsið hefur hlotið að gjöf

Fyrir liggur að fara þurfi í heilmiklar framkvæmdir í Gljúfurleit vegna bágs ástands hússins. Starkaður mun leggja þessu verkefni lið.

Fundi slitið kl. 22.00


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 22:00.
Þeir fulltrúar sem voru á fundinum staðfesta fundargerðina með rafrænni undirritun.