Malbikunarframkvæmdir hér og þar

Nú hillir undir að gatnagerð í Brautarholti fari að klárast. Nýtt malbik var lagt á götuna í morgun en einhver lokafrágangur er eftir, lagning gangstétta og kanntsteina og fleira slíkt. Við þetta tækifæri voru ýmsar lagfæringar gerðar á malbiki; gert var við skurðinn norðan við Félagsheimilið í Árnesi og malbikið inn í Bugðugerði í Árnesi lagað.  Hér má sjá nokkrar myndir af þessum framkvæmdum dagsins.