39. sveitarstjórnarfundur boðaður 15.apríl kl. 16:00. Haldinn með Teams fjarfundarbúnaði.
Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps, 15. apríl, 2020 klukkan 16:00. Fundurinn fer fram meðTeams fjarfundarbúnaði.
Dagskrá
Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps, 15. apríl, 2020 klukkan 16:00. Fundurinn fer fram meðTeams fjarfundarbúnaði.
Dagskrá
Reglur um sóttkví gilda líka úti á landi Að gefni tilefni vill lögreglustjórinn á Suðurlandi og Almannavarnir á Suðurlandi taka það fram að það gilda sömu reglur um sóttkví úti á landi og í þéttbýli. Fólk þarf að halda sig heima. Sjá hér að neðan.
Aðgerðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er lokið og er ekki von á frekara rafmagnsleysi vegna þessa. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Suðurlandi í síma 528 9890 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
Spurt og svarað um COVID-19 Sérfræðingar frá embætti landlæknis voru að uppfæra spurt og svarað inn á Covid.is - Við hvetjum ykkur til að skoða þá síðu.
Með bestu kveðju.
Almannavarnir
Árnesi, 30 mars, 2020 38. Sveitarstjórnarfundur Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Boðað er til 38. fundar í sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps. Fundurinn verður haldinn með Teams fjarfundarbúnaði. 1 apríl, 2020 klukkan 16:00.
Ákveðið hefur verið að loka sundlaugunum frá og með 23. mars. Gámasvæðin eru lokuð sömuleiðis en hægt er eins og venjulega að fara inn með heimilissorp í minniháttar umbúðum á öllum tímum sólarhringsins. Ef fólk vill fara í stórtiltektir hjá sér er bent á að hægt er að fá gám heim á hlað í þrjá daga. - frítt. Hafið samband við skrifstofuna um það.
Gámasvæðin eru lokuð í ljósi aðstæðna en hægt er að fara með lítilsháttar heimilissorp þangað og viljum við beina þeim tilmælum til fólks að það reyni að fara sem minnst á gámasvæðin á meðan þessar fáheyrðu aðstæður eru uppi. Einnig benduum við á að ekki er hægt að setja föt í Rauðakross gámana. Meðf eru leiðbeiningar frá Íslenska gámafélaginu um hvernig best sé að haga sér í sambandi við sorp.
Samkvæmt venju hefði sveitarstjórnarfundur átt að vera haldinn þann 18. mars. Í ljósi aðstæðna er fundinum frestað til 1. apríl n.k. og erindi fyrir hann þurfa að berast í síðasta lagi þann 27. mars.
Með bestu kveðju.
Sveitarstjóri.
Heilbrigðisráðherra mun birta í Stjórnartíðindum nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum í stað þeirrar eldri sem fellur þar með úr gildi. Gildistími verður óbreyttur, þ.e. til 12. apríl næstkomandi. Takmörkunin tekur til landsins alls. Stjórnvöld endurmeta takmörkunina eftir því sem efni standa til, hvort heldur til að aflétta henni fyrr, eða framlengja gildistímann.
Almennt gildir að áhersla er lögð á samskipti í gegnum síma. Ekki er hægt að koma í viðtal á skrifstofum meðan þetta ástand varir.
Uppsveitir s. 480-1180
Barnavernd- Tilkynningum um barnavernd skal beina á netfangið barnavernd@arnesthing.is eða í síma 480-1180. Utan hefðbundins dagvinnutíma er hringt í síma 112 ef tilkynning er þess eðlis að bregðast þurfi við henni tafarlaust.