- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Kjörfundur vegna Alþingiskosninga fer fram laugardaginn 28. október. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur 22:00. Kosið verður í Þjórsárskóla. Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki með mynd og framvísa ef óskað er.
Kjörstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps.
Fréttabréf októbermánaðar er komið út. LESA HÉR Fréttir, fundarboð, augýsingar og ýmislegt fleira ásamt skemmtilegum myndum af börnunum í gunn- og leikskóla og heimsókn kvenna í Búrfellsstöð.
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að endurskoðun eftirfarandi aðalskipulagsáætlana áður en þær verða teknar til afgreiðslu í sveitarstjórn:
Aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Heildarendurskoðun
Myndlistarnámskeið Listrýmis í Listasafni Árnesinga hófust haustið 2015 og hafa verið í stöðugri þróun til að koma til móts við óskir og þarfir samfélagsins á Suðurlandi. Markmiðið er að bjóða upp á námskeið í hinum ýmsu greinum myndlistar, í heimabyggð og fyrir alla.
Í tilefni af evrópska menningarminjadeginum 2017 sem ber yfirskriftina Maður og náttúra verður tekið á móti gestum á milli kl 12 og 16 þann 14. október í Laugarvatnshellum í Bláskógabyggð. Hellarnir tveir hafa verið höggnir í móberg í Reyðarbarm ofan Laugarvatnsvalla, miðja vegu milli Laugarvatns og Þingvalla. Hellarnir hafa í gegnum tíðina verið í alfaraleið á milli Suður- og Vesturlands og hafa löngum verið notaðir sem áningarstaður, afdrep fyrir gangnamenn og sem fjárhellar. Í upphafi 20. aldar hóf fólk fasta búsetu í hellunum og bjuggu þar tvær fjölskyldur hvor á eftir hinni og ráku meðal annars greiðasölu. Kristján X Danakonungar fékk þar í Íslandsheimsókn sinni árið 1921 skyr með rjóma hjá Vigdísi Helgadóttir húsfreyju. Mögulega hefur fólk hafist við í hellunum í fyrndinni en um það er erfitt að fjölyrða.
Auglýst er eftir öflugum stjórnanda til að leiða faglegt tónlistarstarf og halda þétt utan um rekstur eins stærsta
og umsvifamesta tónlistarskóla landsins. Ráðið er í stöðuna til fimm ára og usóknarfrestur rennur út í kvöld kl. 24:00
Starfs- og ábyrgðarsvið
Skrifstofa sveitarfélagsins er lokuð dagana 5. og 6. október þar sem starfsmenn sitja fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í Reykjavík. Ef erindi eru brýn má senda póst á kristofer@skeidgnup.is eða hringja í síma 861-7150. Sími hjá Ara Einarssyni í Áhaldahúsinu er 893-4426.
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
1. Breyting á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016. Reykholt í Þjórsárdal