Lausar lóðir í Árneshverfi 2019
Rúmgóðar einbýlishúsalóðir eru lausar til úthlutunar í fögru umhverfi í Árneshverfi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Meðf. er myndband sem sýnir þær. Myndband hér
Rúmgóðar einbýlishúsalóðir eru lausar til úthlutunar í fögru umhverfi í Árneshverfi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Meðf. er myndband sem sýnir þær. Myndband hér
Eins og kunnugt er hafa flest dreifbýlissveitarfélög í Árnessýslu verið með póstnúmerið 801 Selfoss.
Nú hefur verið gerð breyting í þessum efnum.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur hefur fengið 804 Selfoss,
Flóahreppur fékk póstnúmerið 803 Selfoss, Grímsnes- og Grafningshreppur 805 Selfoss og Bláskógabyggð 806 Selfoss.
30. sveitarstjórnarfundur - Fundarboð - Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps
í Árnesi 16. október, 2019 klukkan 08:30.
Dagskrá
Mál til umfjöllunar og afgreiðslu
Mál til kynningar
Kristófer Tómasson Sveitarstjóri
Skrifstofan verður lokuð dagana 3. og 4. október nk. vegna fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í Reykavík sem starfsmenn skrifstofunnar sækja. Áhaldahúsmennirnir verða á sínum stöðum þeir Ari 893-4426 og Bjarni 892-1250.
Einnig verður hægt að senda tölvupóst á kristofer@skeidgnup.is ef erindi eru brýn.
Vinna við heitavatnsleiðslu í Brautarholti hefst núna á eftir og það kallar á að taka verður vatnið af Holtabrautinni og öllum húsum í Brautarholti frá kl. ca 15:30 - til ca 17:00.
Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu kunna að verða.
Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps í Árnesi 24. september, 2019 klukkan 10:00.
Dagskrá:
Til umfjöllunar:
1. Samningur við Rauðukamba
2. Svæðisskipulag Suðurhálendis
3. Fundargerðir UTU 65-67 ásamt ársreikningi
4. Friðlýsing í Þjórsárdal
Til kynningar
5. Afgreiðslufundir Byggingarfulltrúa 19 -105. fundur
Nú er síðasta útkall fyrir borun á nýjum holum fyrir lífrænan úrgang í sveitarfélaginu, fyrir veturinn! Endilega látið Bjarna í Áhaldahúsinu vita strax ef ykkur vantar þessa þjónustu á bjarni@skeidgnup.is - Þeir fara af stað í þetta, í dag, 18. september 2019.
Boðaður er 28. sveitarstjórnarfundur Skeiða- og Gnúpverjahrepps
í Árnesi 18. september, 2019 klukkan 08:30.
Dagskrá:
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar.
Mál til kynningar
Það er komið út nytt fréttabréf, september 2019. Þar er gott efni og það er komið á vefinn. Lesa hér
Gefið ykkur stund til að njóta.