Síðasti dagur að skila inn tillögu að nafni 20. október.
Í dag, þann 20. október er síðasti dagur til þess að skila inn tillögu að nýju nafni á sveitarfélagið. Koma má með tillögur á skrifstofu í Árnesi til kl. 16:00 og ef tillaga er send með Íslandspósti miðast móttaka við stimpil á umslagi. Einnig mun sveitarstjóri taka við tillögum eftir lokun skrifstofu til kl. 22:00 í kvöld og má þá hafa samband við hann í síma 861-7150.