Fréttabréf apríl komið á vefinn
Fréttabréf apríl er hægt að lesa hér Heilmikið um að vera núna. Gleðilegt sumar.
Fréttabréf apríl er hægt að lesa hér Heilmikið um að vera núna. Gleðilegt sumar.
Í þéttbýliskjörnunum við Brautarholt og Árnes í Skeiða- og Gnúpverjahreppi eru lausar lóðir. Í Árneshverfi eru níu rúmgóðar einbýlishúsalóðir tvær parhúsalóðir og tvær raðhúsalóðir lausar til umsóknar. Þær eru staðsettar við Hamragerði, Heiðargerði og Bugðugerði. Möguleiki er einnig á iðnaðarlóðum við jaðar hverfisins.
Umhverfisdagur verður haldinn í Árnesi þann 9. apríl n.k. og verður fjölbreytt dagskrá sem hefst kl. 13:00. þ.a.m. Sýnt verður myndband frá börnunum í Leikholti og einnig munu veggspjöld frá þeim prýða veggina. Atriði frá Þjórsárskólanemendum. Fyrirlestur um matarsóun haldinn af Dóru Svavarsdóttur. Erindi frá Landvernd sem Guðundur I. Guðbrandsson heldur. Fuglalíf við Þjórsá haldið af Tómasi G. Gunnarssyni. Kynning á starfi Landbótafélags Gnúpverja. kaffihlé verður kl. 15:00. Eftir það koma aðilar frá Gámaþjónustunni og Íslenska gámafélaginu og halda fyrirlestra og umræðuhópar verða um sorpflokkun. Íbúar og aðrir eru hvattir til að koma og taka þátt og fara yfir flokkunarmál hér í sveitarfélagainu og almennt.
Árshátíð Þjórsárskóla var haldin föstudagskvöldið 11. mars, í Félagsheimilinu Árnesi, kl. 20:00. Halla Guðmundsdóttir leikkona samdi og leikstýrði verki sem helgað var indíánum og landnemum í Vesturheimi og skyggnst var inn í líf þeirra. Gleði skein úr hverju andliti leikenda og áhorfenda en allir nemendur tóku þátt í sýningunni ásamt kennurum og starfsfólki.
Fréttabréf mars 2016 er komið úr lesið hér. Framundan er árshátíð Þjórsarskóla, hjónaball, Í Brautarholti, umhverfisþing Í Árnesi ,námskeið í Skálholti, fundir og fleira skemmtilegt.
Sorphirðudagatalið var eitthvað á reiki en hér birtist nýjasta útgáfan.
Munið að skila skal efni fyrir 5. mars n.k. í Fréttabréfið okkar og minni á að páskarnir eru á framundan, og svo vorið.
Ritsjóri.
Árnesi 28.febrúar. 2016
Fundarboð
Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps í Árnesi miðvikudaginn 02 mars 2016 kl. 14:00.
Dagskrá:
Mál til umfjöllunar og afgreiðslu
1. Reykholtslaug Þjórsárdal. Áform um uppbyggingu. Framhald frá fundi 24.
Breyting verður á fyrirkomulagi á innheimtu fasteignagjalda árið 2016 af fasteignum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Ekki verða sendir út greiðsluseðlar, né álagningarseðlar nema þess sé sérstaklega óskað. Álagningarseðla er að finna á www.island.is. undir ,,mínar síður"